Útskriftarárgangur MK 1983

Aldarfjórðungur frá útskrift

23.12.2008 16:44:41 / MK1983

Gleðileg jól

Kæru samstúdentar,
ég færi ykkur mínar bestu óskir um gleðiríka jólahátíð og farsæld á komandi ári, þakka sérstaklega ánægjulegar samverustundir á 25 ára stúdentsafmælinu. Ég er ennþá brosandi!
kv. Ingó

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 00:07:41 / MK1983

Til hamingju með 25 ára stúdentsafmælið

Kæru samstúdentar. Ég færi okkur öllum hamingjuóskir á 25 ára stúdentsafmælinu, sem er í dag. Megi næstu 25 ár verða okkur öllum góð og hamingjurík og haldið endilega áfram að uppfylla Jörðina, rækta líkama og sál, landi og þjóð til heilla.

Ykkar skál, Ingó

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2008 14:46:57 / MK1983

Myndir komnar inn

Það eru komnar inn myndir frá hátíðinni. Þar var mikið stuð eins og sjá má hér að neðan. Nú bíð ég bara eftir myndum frá Stefáni Guðleifs, hann tók líka slatta af myndum sem ég bæti inn um leið og þær berast mér í hendur. Í athugasemdir hér fyrir neðan hef ég líka skráð og mun skrá kveðjur sem berast, en eitthvað er um það að póstur sem er sendur til allra berst ekki til nema hluta hópsins. Takk fyrir mig. Ingó

Ýr og Gunni dansa við Pscyco Killer, fa fa fa fa fa fa fa fa fa fa!

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.05.2008 12:14:49 / MK1983

Frábært kvöld - stórkostleg mæting - ótrúlega góð skemmtun!

Frábært ... stórkostlegt ... ótrúlegt ... magnað ... meiriháttar ... þið megið velja hvaða lýsingarorð sem er, jafnvel mörg, já eða bara þau öll til að lýsa skemmtuninni í gærkvöldi. Ég kýs að velja öll orðin, það er langt síðan ég skemmti mér svona mikið og vel. Hópurinn okkar er enda ótrúlega vel stemmdur, skemmtilegur og ómótstæðilega fallegur þannig að það er ekki hægt að láta sér leiðast.
Fyrir mína hönd og sjálfsagt þeirra Ýrar og Stefáns líka þakka ég samstúdentum okkar, mökum þeirra og ekki síst kennurunum fimm, sem hér eftir verða bara kallaðir „hinir fimm fræknu“ fyrir kvöldið. Það mun lifa lengi í minningunni.
ps. ég set inn myndir sem ég tók núna um helgina. Hef þegar sett inn nokkrar myndir af fimmmenningaklíkunni (hugsa að sjálfsögðu fyrst um sjálfa mig og mínar nánustu) ... endilega kvittið í gestabókina eða í athugasemdakerfið, þetta er ekki flókið, aðeins nokkur orð og músasmellir! Koss og knús á ykkur öll!
Yfir og út - Ingó :haha:
5 menningaklíkan
Fimmmenningaklíkan skartaði sínu fegursta í gærkvöldi. Er það mat okkar sjálfra að við höfum aldrei verið fegurri en einmitt í gærkvöldi og sönnum þar með að við erum eins og gott rauðvín, bötnum bara með aldrinum!

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 09:55:33 / MK1983

Þorsteinn Helgason mætir í kvöld

Fyrir listasögugellurnar sem skoðuðu Fæðingu Venusar í Ufizzi safninu í Flórens og ferðalangana sem sendu Þorsteini Helgasyni póstkort frá Nürnberg af verki eftir Dürer ... þá var hann að staðfesta mætingu.
Við verðum þar með ríflega 40 saman í kvöld sem er frábær mæting!

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 16:12:24 / MK1983

Enn bætist í hópinn

Þau ánægjulegu tíðindi gerðust í dag að ég fékk tilkynningu um fimm til viðbótar sem ætla að mæta. Þar ber fyrstan að telja Gísla Ólaf Pétursson, stærðfræðikennara, hjónin Sjöfn og Stefán og svo kappana tvo Trausta Júlíusson og Þóri Bergsson.
Til að við höfum yfirlit um þetta þá hef ég bætt þeim inná listann hér fyrir neðan og sett broskalla fyrir aftan enda gleður það mig og sjálfsagt okkur öll að sem flestir mæti.
Mætingin úr N-bekknum er allt að því fullkomin, allir mæta nema Snjólaug sem þarf að sinna læknisstörfum í konungsríkinu Svíþjóð, að auki koma fjórir makar.
Eðlisfræðideildin er betur afsökuð en Máladeildin en úr báðum bekkjum er allt að því 50% mæting. Fimm af 10 mæta úr E-bekknum en þau bæta það upp með Sigga hennar Hebu sem mætir að sjálfsögðu. Þrír af þeim fimm sem ekki mæta eru stödd erlendis vegna vinnu eða fría.
Úr Máladeildinni er það að segja að af 12 stúdentum mæta 6 en 6 mæta ekki en svo M-bekkurinn njóti sannmælis þá eru 2 af þeim 6 sem ekki mæta staddar erlendis, en fjórir stúdentar af Málabraut eiga ekki heimangengt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 09:18:40 / MK1983

Á morgun

Á morgun hittast 25 ára stúdentar frá MK. Ef þið ætlið að hittast einhversstaðar fyrir hófið þá væri gaman ef þið segðuð frá því hér á síðunni.

:!:Dagskrá hefst kl. 19:00 með fordrykk
Myndasýning: Ingibjörg Hinriksdóttir:^)
Sest verður að borðum um kl. 20:00

Hátíðarmatseðill Rúgbrauðsgerðarinnar

Við móttöku:
Freyðivín og ítalskar snittur;)

8|Matseðill:
Humarpaté og humarhalar á salati
Sítrónumarineruð hörpuskel
Reyklaxamosaik með fylltum eggjum

Brauðskálar með villisveppa- risotto og kókosrækjum
Innbakaður lax

Fylltar kalkúnabringur með appelsínu og engifer
Gæsalifrapaté með rauðlauks- rúsínucompot
Kryddlegið nauta- Carpaccio

Innbakaðar nautalundir Wellington

Annað meðlæti:
Kryddjurtasósa, sítrónusósa, eplasalat, ferskt soðið grænmeti,
fylltar kartöflur, ýmis nýbökuð brauð og annað meðlæti sem við á.

Ávarp 25 ára stúdenta: Ýr Gunnlaugsdóttir:|
Ávarp kennara: Neil McMahon:cry:
Veislustjóri og stuðmaður: Stefán Guðleifsson:klikk:


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 11:58:30 / MK1983

Fín mæting

Sæl öll,
ég veit að ykkur leikur forvitni á að vita hverjir hafi staðfest mætingu á afmælishátíðina. Það er engin ástæða til að kvelja ykkur lengur með það, og hér með upplýsist að eftirtaldir munu mæta og hafa greitt þátttökugjald (Sjöfn og Stefán voru að bætast í hópinn):
  • Arinbjörn Viggó Clausen
  • Arna Ormarsdóttir
  • Ásdís Lilja Ragnarsdóttir
  • Bergljót Kristinsdóttir og Andrés
  • Bjarki Þór Jóhannesson
  • Gerður Guðjónsdóttir
  • Guðjón Karl Reynisson
  • Guðmundur Stefán Guðleifsson
  • Guðrún Atladóttir Hraunfjörð og Jón
  • Gunnar G. Flóvens
  • Heba Hertervig og Siggi
  • Helga Einarsdóttir
  • Hrund Þorgeirsdóttir
  • Ingibjörg Hinriksdóttir
  • Ingvaldur L. Gústafsson
  • Ívar Eiríksson
  • Jón Magnússon
  • Jónína Ágústsdóttir og Logi
  • Jónína Kristjánsdóttir
  • Kjartan Björgvinsson
  • Lára Kristjánsdóttir
  • Ólafur Þór Gunnarsson
  • Ragnheiður Haraldsdóttir
  • Sif Garðarsdóttir
  • Sigríður María Torfadóttir
  • Sjöfn Sigurgísladóttir :þ
  • Soffía Guðný Jónsdóttir
  • Stefán Jökull Sveinsson :þ
  • Trausti Júlíusson :þ
  • Ýr Gunnlaugsdóttir
  • Þór Heiðar Ásgeirsson og Sigrún
  • Þórir Bergsson :þ

Reyndar á Guðjón eftir að staðfesta en við setjum pressu á kappann og treystum því að hann mæti til leiks klár og hress. Fyrir utan þetta afbragðslið þá munu eftirtaldir kennarar mæta á svæðið: Neil McMahon, Gísli Ólafur Pétursson:þ, Jóhann Ísak Pétursson, Þorsteinn Helgason (líklega) og Þór Steinarsson. Neil hefur lofað því að halda tölu í tilefni endurfundanna, við getum þá líklega öll farið að hrista rykið af enskukunnáttunni okkar því líklega mun kappinn ekki mæla uppá íslenska tungu.

Nákvæmlega tímasett dagskrá endurfundanna verður birt hér á vefnum í kvöld eða á morgun.

Yfir og út - Ingó


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 16:41:57 / MK1983

Myndir frá Ingvaldi

Þar kom að því! Ingvaldur Gústafsson sendi mér myndir frá Basjahátíð 1986 ... þvílíkar myndir :haha:
Þið smellið á myndasafnið hér til vinstri og veljið þar myndir frá Inga Gústafs. Algjör snilld, merkilegt hvað við höfum lítið breyst frá 1986. Ef einhver á föt frá sama tíma þá er núna tækifærið til að draga þau fram í dagsljósið á ný.
Minni enn og aftur á að þið þurfið að greiða þátttökugjaldið fyrir laugardag, sem sagt í dag eða á morgun. Bankanúmerið er 0322-13-388, kt. 031263-5659.
Love you ... Ingó Babe

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 13:20:15 / MK1983

Undirbúningur á lokastigi

Sæl öll, undirbúningur fyrir endurfundina er nú á lokastigi. Búið er að hafa samband við alla nema Loft, en vitað er að hann býr erlendis en ekki hefur tekist að hafa uppi á netfanginu hans. Viðbrögð við endurfundunum eru góð, margir hafa þegar greitt þátttökugjaldið og vitað er um enn fleiri sem ætla að mæta.
Undirbúningsnefndin, Stefán, Ýr og undirrituð, hafa haft samband við nokkra kennara okkar og boðið þeim til fundar við okkur og hafa undirtektir þessara lærimeistara verið með ágætum. Jói jarðfræðikennari og Þór Steinars hafa boðað komu sína. Þorsteinn er heitur og GÓPi líka, Ingibjörg Haralds átti því miður ekki heimangengt og enn ríkir nokkur óvissa með Mr. McMahon. Stefán hefur eitthvað smaðrað fyrir honum, ég sendi honum tengil á myndirnar af máladeildinni og vona að það dugi honum til að mæta í hófið! Ef allt annað bregst þá vitum við hvar kappinn býr og Ýr er tilbúin til að líta í heimsókn til hans hvenær sem er!
Ég minni enn og aftur á að greiða þátttökugjaldið í síðasta lagi á morgun, föstudag. Reikningsnúmerið er 0322-13-388, kt. 031263-5659.
Yfir og út - Ingó BA.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 07:53:16 / MK1983

Myndir frá Beggu

Begga sendi mér myndir í gærkvöldi sem ég var ekki lengi að drífa á vefinn. Frábærar myndir frá Beggu og skemmtilegar lýsingar sem fylgja þeim. Ég viðurkenni að ég varð dálítið óttaslegin þegar ég sá hvað myndirnar hétu en fullyrði að það er ekkert að óttast, a.m.k. ekki hjá mér!
Minni ykkur á að makar eru velkomnir á endurfundina og munið líka eftir að borga, ekki síðar en á föstudag!
Yfir og út - Ingó Bambínó

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 17:39:25 / MK1983

Lagalistinn

Ætli þið séuð ekki farin að halda að ég hafi ekkert annað að gera en skrifa á þessa vefsíðu!  Svo er nú reyndar ekki, en þið sem voruð með mér í bekk vitið að ég hef mikla þörf fyrir að tjá mig og þar sem það eru ekki margir hér heima til að ræða við þá níðst ég bara á ykkur!  Auk þess þá er ég örugglega með 10 í vélritun (nokkrum árum á eftir Siggu Maju reyndar!!) Eins gott að þið lesið þetta  8|

Hvað um það ... þá er komið að því að velja helstu lög kvöldsins. Síðustu nætur hef ég legið yfir lagalistum (ok. framundir kl. 01:00) og komist að þeirri niðurstöðu að það þurfi að fara fram óformleg kosning um hvaða lögu séu NAUÐSYNLEG 16. maí. Persónulega hef ég nokkrar skoðanir á málinu (og mun ekki liggja á þeim). Það sem ég legg til er t.d.:
  • Don't you want me - The Human league
  • Up where we belong - Joe Cocker
  • Rosanna - Toto
  • Hip to be square - Huey Lewis and the News
  • Take the long way home - Supertramp
  • Da da da - Trio
  • Roxanne - The Police
  • Boat on the river - Styx
  • Another one bites the dust - Queen
  • I just died in your arms tonight - Air Supply
  • Ladies night - Kool & the gang
  • Hotel California - Eagles
  • Ticket to the moon - ELO
  • Sultans of swing - Dire Straits
  • Karma Camalion - Culture Club
  • Time after time - Cyndi Lauper
  • My oh My - Slade
  • Relax - Frankie goes to Hollywood

 - skoðið lagalistann hér til vinstri, hvað segið þið um hann?
 - að ógleymdum öllum Diskó-lögunum t.d. með Imagination t.d. Body Talk, Just an illusion og Music and light!

Endilega komið með tillögur að ómissandi lögum!


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 22:17:41 / MK1983

Sigga Maja sendi myndir

Hó hó hó, eitthvað mun léttast brúnin á fimmmenningaklíkunni nú þegar Sigga Maja hefur sent inn myndir. Vinkonur mínar, Sif, Soffía, Hrund og Arna verða þar með ekki lengur í aðalhlutverkum ... tja, engin nema kannski Hrund! Það er síðan önnur saga hvort tíburarnir, Helga og Gerður verða glaðar við að sjá allar þessar myndir á almannafæri. Sjón er sögu ríkari. Siggu Maju þakka ég (og þið) fyrir myndirnar!
Yfir og út - Ingó
ps. muna að kvitta fyrir komunni!

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 23:28:27 / MK1983

Rimini - þið voruð vöruð við!

Um síðustu helgi setti ég inn nokkrar myndir. Þá sagði ég að á miðvikudag myndu koma inn myndir frá Rimini ef mér bærust ekki myndir frá ykkur. Hér með hef ég staðið við það loforð. Myndirnar frá Rimini eru komnar inn, þeim allra verstu var sleppt og myndir frá ströndinni hafa verið bannaðar á þessari síðu þar sem margt af strandamönnum hafa eignast börn sem nú um stundir eru á unglingsaldri og þá er eins gott að það fréttist ekki ALLT sem gerðist á Rimini.
Einhverjar fleiri myndir á ég til í handraðanum og nefni þar t.d. bekkjarmyndir af 1-C og 2-X. Þær koma inn um næstu helgi. Endilega kvittið fyrir komunni og munið að senda mér staðfestingarpóst um netfangið ykkar.
Yfir og út - Ingó 8)

      

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 08:59:41 / MK1983

Dagskráin klár

Sæl öll,

þá eru aðeins þrjár vikur til endurfundanna í Rúgbrauðsgerðinni 16. maí.  Undirbúningsnefndin hefur staðið fyrir stífum fundahöldum um framkvæmd hátíðarinnar og komist að eftirfarandi niðurstöðu:

Matseðillinn er í samræmi við tilefnið, hátíðlegur, með ótrúlega girnilegum og glæsilegum réttum - þið hafið þegar fengið hann í tölvupósti.

Vínveitingar verða á staðnum, verði er stillt í hóf.

Makar eru velkomnir.

Dagskráin hefst með fordrykk í Rúgbrauðsgerðinni kl. 19:00-19:30.

Veislustjóri verður Stefán Guðleifsson, vert í Rúgbrauðsgerðinni.

Ræðumaður kvöldsins verður Ýr Gunnlaugsdóttir frá Háskólanum í Reykjavík.

Skemmtiatriði verða fjölbreytt – ef einhver vill bæta í safnið er það velkomið.

Stúdentum sem útskrifuðust 1984 en fæddust 1963 verður boðið að taka þátt í hátíðinni. 

Útvöldum kennurum er boðið til hátíðarinnar.

Kostnaður er 6.500 krónur á mann.

Nauðsynlegt er að tilkynna um þátttöku fyrir 9. maí og þá þarf einnig að vera búið að greiða inná reikning gjaldkera hátíðarinnar, nr. 0322-13-388, kt. 031263-5659. Til öryggis þá er nauðsynlegt að þið sendið greiðslustaðfestingu á ingibjorg@samband.is og takið fram fyrir hvaða stúdent er verið að greiða fyrir.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Talning
Eftir 478 daga
Verðum við 30 ára stúdentar!!
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 18492
Könnun
Númer hvað er útskrifarárgangur 1983 úr MK?
5
2 atkvæði

8
6 atkvæði

10
3 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 11
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti